Gefur um 16 Magdalenu
Hráefni
- 100 g flórsykur
- Fínrifinn börkur af 1 sítrónu
- 1 tsk vanilludropar eða vanillupaste
- 2 stór egg (120 g)
- 100 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ¼ tsk salt
- 100 g smjör brætt
Aðferð
- Setjið flórsykur, sítrónubörk, vanillu og egg í skál. Hrærið saman þar til blandan er slétt.
- Bætið síðan við hveiti, lyftidufti og salti og hrærið rétt þar til deigið hefur aðeins komið saman.
- Hellið brædda smjörinu út í og hrærið þar til deigið verður silkimjúkt og jafnt.
- Leggið síðan plastfilmu yfir yfirborð deigsins og kælið í að minnsta kosti 1–2 klukkustundir. Best er að láta það standa í ísskáp yfir nótt. Kælingin hjálpar Magdalenunum að fá einkennandi bunguna á miðjunni.
- Þegar deigið hefur fengið að kólna, hitið ofninn í 240°C.
- Smyrjið Magdalenuformið ef þarf með bræddu smjöri. Setjið deigið í sprautupoka eða notið tvær teskeiðar til að fylla formin um það bil ¾.
- Setjið kökurnar inn í ofninn og lækkið hitann strax í 180°C. Bakið í 10–14 mínútur, eða þar til þær eru orðnar ljós-gullbrúnar á köntunum.
- Látið Magdalenurnar kólna í nokkrar mínútur áður en þær eru teknar úr forminu og færðar á kæligrind.
Sítrónuglassúr
- 150 g flórsykur
- Safi úr 1/2 – 1 sítrónu
Aðferð
- Hrærið flórsykur og sítrónusafa saman þar til myndast þunnur, fljótandi glassúr. Bætið við meiri sítrónusafa ef glassúrinn virðist of þykkur.
- Dýfið hverri magdalenu í glassúrinn, leggið þær síðan á kæligrind og látið glassúrinn þorna þar til hann myndar fína, glansandi húð á yfirborðinu.





