Klassískt sítrónutart

Sítrónutart hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds eftirréttum. Stökk  tartskel, silkimjúkt sítrónucurd og léttur ítalskur marengs gera þetta að eftirrétti sem hentar við öll tilefni, hvort sem það er fyrir veislu eða með góðum kaffibolla.


Tartskel

Hráefni:

  • 170 g smjör við stofuhita
  • 75 g flórsykur
  • 1 egg
  • ½ tsk salt
  • ½ tsk vanilludropar
  • 235 g hveiti
  • 1½ msk möndlumjöl

Aðferð:

  1. Hrærið saman smjör, flórsykur, egg, salt og vanilludropa þar til blandan er mjúk.
  2. Bætið hveiti og möndlumjöli út í og hrærið aðeins þar til deigið kemur saman.
  3. Pakkið deiginu inn og kælið í að minnsta kosti 1 klukkustund eða yfir nótt.
  4. Fletjið deigið út á milli tveggja laga af bökunarpappír.
  5. Leggið deigið í 28 cm tartform og þrýstið því vel upp með hliðunum.
  6. Skerið umframdeig af köntunum og lagið möguleg göt með afgangsdeigi.
  7. Setjið formið í frysti í um 10 mínútur.
  8. Klæðið deigið með bökunarpappír, fyllið með bökunarbaunum eða hrísgrjónum og bakið við 170°C í 10–14 mínútur.
  9. Fjarlægið pappírinn og baunirnar og leyfið skelinni að kólna.

Sítrónucurd

Hráefni:

  • 175 g sítrónusafi
  • 150 g smjör
  • 200 g sykur (130 g + 70 g)
  • 3 egg
  • 2 eggjarauður

Aðferð:

  1. Setjið sítrónusafa, 130 g af sykrinum og smjörið í pott og hitið þar til smjörið hefur bráðnað.
  2. Á meðan þeytið þið egg, eggjarauður og 70 g af sykrinum þar til blandan verður ljós og létt.
  3. Hellið heitu sítrónublöndunni rólega út í eggjablönduna á meðan hrært er stöðugt.
  4. Hellið öllu aftur í pottinn og hrærið stöðugt með písk yfir miðlungs-lágum hita þar til curdið hefur þykknað.
  5. Sigtið curdið í skál.
  6. Hellið sítrónucurdinu í bakaða tartskelina.
  7. Bakið við 170°C í um 10 mínútur.
  8. Leyfið tartinu að kólna við stofuhita og kælið síðan í að minnsta kosti 3 klukkustundir, eða helst yfir nótt inn í ísskáp.
  9. Takið tartið varlega úr forminu. Ef tartið hefur verið kælt í ísskáp getur verið gott að hita hliðarnar og botninn á forminu örlítið með gasbrennara til að losa það. Rennið síðan þunnum spaða á milli botns formsins og tartsins og rennið því varlega yfir á kökudisk.

Ítalskur marengs

Hráefni:

  • 150 g sykur
  • 45 g vatn
  • 75 g eggjahvítur (u.þ.b. 2 eggjahvítur)

Aðferð:

  1. Setjið sykur og vatn í lítinn pott og hitið þar til sykurinn hefur leyst upp. Látið sírópið sjóða þar til það nær 115–118°C.
  2. Á meðan sírópið hitnar, þeytið eggjahvíturnar þar til þær verða léttar og loftkenndar.
  3. Hellið sírópinu rólega niður með hliðinni á hrærivélarskálinni á meðan hrærivélin gengur.
  4. Haldið áfram að þeyta þar til marengsinn er stífur, glansandi og skálin er orðin volg eða köld viðkomu.

Skreyting

  1. Setjið marengsinn í sprautupoka með þeim stút sem ykkur finnst fallegastur og sprautið honum yfir tartið.
  2. Brúnið marengsinn varlega með gasbrennara þar til hann verður fallega gylltur.
  3. Skerið tartið í sneiðar og berið fram.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)