Magn: 12–14 kökur
Hráefni:
- 125 g dökkt súkkulaði, helst 70% kakó
- 150 g hveiti
- 30 g kakó
- 1 tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- 125 g mjúkt smjör við stofuhita
- 75 g púðursykur
- 50 g sykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 stórt kalt egg
- 200 g súkkulaðidropar eða saxað súkkulaði
- 2 pokar Sweeto hjarta sykurpúðar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C blástur.
- Bræðið dökka súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Leyfið því að kólna örlítið á meðan þið undirbúið deigið.
- Skerið Sweeto sykurpúða hjörtun í minni bita. Það er sniðugt að skilja nokkur hjörtu eftir og skera þau aðeins í tvennt, þá henta þau fullkomlega til að setja ofan á kökurnar seinna. Leggjið síðan til hliðar.
- Blandið saman hveiti, kakói, matarsóda og salti í skál.
- Þeytið saman mjúkt smjör, púðursykur og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið brædda súkkulaðinu saman við og blandið vel.
- Bætið vanilludropum og köldu eggi út í og blandið rétt þar til blandan virðist aðeins léttari.
- Blandið þurrefnunum saman við og hrærið að lokum súkkulaðibitunum og sykurpúða bitunum saman við.
- Skiptið deiginu í 12–14 í kúlur með skeið. Setjið á bökunarpappír með góðu bili á milli og bakið í 7 mínútur.
- Takið kökurnar úr ofninum og setjið eitt sykurpúða hjarta sem við skárum í helming ofan á hverja köku. Þrýstið því mjög létt niður þannig að það festist.
- Setjið aftur inn í ofninn og bakið í 3–4 mínútur til viðbótar, eða þar til kökurnar eru bakaðar á köntunum en enn mjúkar í miðjunni.
- Leyfið kökunum að kólna á bökunarplötunni í nokkrar mínútur og njótið síðan með ísköldu mjólkurglasi.





