Súkkulaðikaka með þeyttri saltkaramellu og súkkulaði ganache

Súkkulaðikaka

  • 130 g hveiti
  • 200 g sykur
  • 40 g Nóa Síríus kakó
  • 1 tsk lyftiduft
  • ¾ tsk matarsódi
  • ½ tsk salt
  • 120 g heitt kaffi
  • 130 g súrmjólk
  • 55 g olía
  • 1 egg
  • 1 tsk vanilludropar

Þeytt saltkaramella

  • 150 g sykur
  • 200 g rjómi
  • 15 g smjör
  • salt eftir smekk

Súkkulaðiganache

  • 230 g dökkt súkkulaði, 55–70% kakó
  • 180 g rjómi
  • 2 msk golden syrup eða hunang
  • 185 g smjör, við stofuhita og skorið í teninga
  • örlítið sjávarsalt

Aðferð

Súkkulaðikakan:

  1. Hitið ofninn í 180˚C blástur
  2. Setjið kakó og heitt kaffi í stóra skál og hrærið vel saman þar til kakóið hefur leyst upp. Heita kaffið hjálpar til við að „blóma“ kakóið og gefur kökunni dýpra súkkulaðibragð.
  3. Bætið sykri, súrmjólk, olíu, eggi og vanilludropum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel.
  4. Bætið síðan hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti út í og hrærið aðeins þar til deigið er slétt og allt hefur blandast saman. Ekki þarf að blanda þurrefnunum saman í sér skál — þetta er einföld eins-skálar uppskrift.
  5. Setjið bökunarpappír í 36 × 24 cm bökunarform og hellið deiginu í formið og bakið í 18–22 mínútur.
  6. Leyfið kökunni að kólna alveg áður en hún er skorin og sett saman.

Þeytt saltkaramella:

  1. Útbúið karamelluna á meðan kakan bakast eða kólnar, þar sem hún þarf góðan tíma í kæli.
  2. Setjið sykur í pott og bræðið yfir meðalhita þar til hann verður að djúpum, gylltum karamellu. Ekki hræra of mikið í sykrinum á meðan hann bráðnar hreyfið frekar pottinn varlega ef þarf.
  3. Á meðan hitið þið rjómann í sér potti þar til hann er vel heitur, en þarf ekki að sjóða.
  4. Þegar karamellan er tilbúin, bætið smjörinu út í og hrærið þar til það hefur bráðnað saman við karamelluna.
  5. Hellið heitum rjómanum varlega út í í þremur skömmtum, hrærið vel á milli. Passið ykkur þar sem blandan mun freyða og sjóða mikið þegar rjóminn fer út í.
  6. Leyfið karamellunni að sjóða í stutta stund og takið síðan pottinn af hitanum. Hrærið sjávarsalti saman við eftir smekk.
  7. Hellið karamellunni í hitaþolið ílát og leyfið henni fyrst að ná stofuhita. Setjið síðan í kæli þar til hún er alveg köld. Mér finnst best að gera karamelluna kvöldið áður og láta hana standa í kæli yfir nótt.

Súkkulaðiganache:

  1. Bræðið súkkulaðið varlega, annaðhvort yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni í stuttum lotum.
  2. Hitið rjómann þar til hann er vel heitur. Hellið honum yfir brædda súkkulaðið í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli þar til blandan verður slétt og glansandi.
  3. Hrærið golden syrup eða hunangi saman við og bætið síðan smjörinu út í, smátt og smátt. Hrærið þar til smjörið hefur bráðnað alveg saman við súkkulaðið.
  4. Bætið örlitlu sjávarsalti við eftir smekk.
  5. Ef ganache-ið er ekki alveg silkimjúkt er gott að nota töfrasprota til að blanda það vel saman þar til það verður alveg slétt.
  6. Setjið ganache-ið í kæli þar til það hefur stífnað nægilega til að hægt sé að smyrja því á kökuna. Það þarf ekki endilega að standa yfir nótt, en ef þið gerið karamelluna daginn áður er mjög þægilegt að gera ganache-ið á sama tíma.

Samsetning:

  1. Takið ganache-ið út úr ísskápnum og leifið því að komast við stofuhita. Ef það er of stíft þá er gott að hita það í örbylgjuofni í örfáar sekúndur í einu og hrærið vel á milli. Það ætti að verða aftur silkimjúkt og auðvelt að vinna með án þess að það bráðni alveg.
  2. Þegar kakan er hefur alveg kólnað, takið hana úr forminu og fjarlægið bökunarpappírinn. Skerið kantana af kökunni ef þarf og skerið síðan kökuna í þrjá jafnstóra ferhyrninga.
  3. Þegar karamellan er orðin alveg köld, þeytið hana með handþeytara á meðalháum hraða þar til hún verður ljósari á litinn, loftkenndari og nógu þykk til að halda lögun sinni.
  4. Setjið fyrsta kökulagið á undirlag eða disk. Smyrjið eða sprautið súkkulaðiganache yfir kökuna og skiljið eftir smá kant meðfram hliðunum. Setjið síðan helminginn af þeytta karamellinu yfir súkkulaðið og dreifið jafnt. (Ég mæli með að nota sprautupoka fyrir bæði karamelluna og ganache-ið þar sem það gerir auðveldara að fá jafnþykk lög.)
  5. Leggið annað kökulagið ofan á og endurtakið með ganache og hinum helmingnum af karamellunni og setjið síðasta kökulagið ofan á.
  6. Setjið kökuna í kæli í smá stund svo lögin nái að festa sig og kakan verði stöðug áður en þið setjið restina af ganache-inu utan á hana. Smyrjið ganache yfir toppinn og langhliðar kökunnar. Það þarf ekki að setja ganache á endana, þar sem þeir verða skornir af þegar kakan er borin fram.
  7. Setjið kökuna aftur í kæli og kælið alveg í gegn áður en hún er skorin. Til að fá fallegar og hreinar sneiðar er gott að hita beittan hníf undir heitu vatni, þurrka hann vel með viskustykki og skera síðan kökuna. Hreinsið og hitið hnífinn aftur á milli sneiða eftir þörfum.

 

Geymsla

Geymið kökuna í kæli í allt að 5 daga.

Best er þó að taka hana úr kæli nokkrum klukkustundum áður en hún er borin fram. Þá mýkjast ganache-ið og kakan nær stofuhita og verður mun mýkri og betri.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)