Lúxus súkkulaðibitakökur

Hráefni:

  • 505 g hveiti
  • 1 ½ tsk salt
  • 35 g maísmjöl
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 320 g brúnað smjör
  • 285g púðursykur
  • 115g sykur
  • 2 egg
  • 3 eggjarauður
  • 450g súkkulaði

 

Aðferð:

  1. Setjið 200 g af smjörinu í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál. Bætið við 120 g af smjöri út í og leyfið því að bráðna og síðan kólna í uþb 10 mín.
  1. Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda, maísmjöli og salti og setjið til hliðar.
  2. Hrærið sykrana saman við smjörið með písk og síðan eggin og vanilludropa
  3. Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna með sleikju, bætið síðan súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  4. Skammtið deiginu í 100 gr. Kúlur og kælið í 30-60 mín eða helst yfir nótt. Mér finnst oft gott að raða kökudeigskúlunum síðan í poka og geyma inn í frysti og kippt út nokkrum kúlum þegar mér langar í ný bakaðar súkkulaðibitakökur.
  5. Hitið ofninn á 190 ° C og setjið síðan kúlurnar á bökunarplötu með nóg bil á milli því þær dreifast út við bakstur og bakið í 14  mín
  6. Stráið smá sjávarsalti ofan á og njótið með ísköldu mjólkurglasi.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)