Rice krispies kaka með saltkaramellu

Rice Krispies kaka

  • 150 g Nóa Siríus suðusúkkulaði
  • 500 g sýróp
  • 300 – 500 g Rice Krispies
  • Saltkaramellu sósa:
  • 110 g sykur
  • 60 g vatn
  • 120 g rjómi
  • Klípa af salti

Samsetning:

  • 250 g þeyttur rjómi
  • Smá kropp
  • Jarðaber

Aðferðir:

Rice Krispies kaka:

  • Bræðið saman súkkulaðinu og sýrópinu þar til að það eru engir bitar af súkkulaði eftir og blandan er meira fljótandi.
  • Takið síðan af hitanum of hrærið Rice Krispies við þar til að það sést ekkert súkkulaði sýróp í botninum. Hellið síðan í hringlaga kökuform með bökunar pappír í botninum.
  • Þjappið blöndunni vel í formið og kælið síðan inn í ísskáp.

Saltkaramellu sósa:

  • Setjið saman sykur og vatn í miðlungs pott og bræðið saman yfir lágum hita. Ekki hræra neitt í blöndunni en vaktið hana rosa vel.
  • Hægt og rólega á blandan að byrja að fá smá dekkri lit, lækkið enn meira í hitanum og um leið og karamellan verður gullinbrún þá á að hella rjóman útí í þremur skömmtum, og hrærið vel á milli. Varist að karamellan frussist smá upp og gæti komið smá gufuský.
  • Bætið síðan við klípu af sjávarsalti og sjóðið í auka 3 mín.
  • Hellið síðan í eldfast mót og leyfið að kólna við stofu hita í ca 1-2 klst.

Samsetning:

  • Þeytið rjóma og setjið til hliðar.
  • Losið Rice Krispies kökuna úr forminu og leggið á kökudisk. Dreyfið saltkaramellu sósunni yfir kökuna og smyrjið síðan rjómanum ofan á. Dreifið smá kroppi yfir og nokkur jarðarber til skrauts.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)