Gulrótarkaka

Það er fátt betra en að að fá sér góða gulrótarköku sneið með smá rjóma. Gulrótakökur eru ein af uppáhalds kökunum mínum og þessi uppskrift hefur fyllt fjölskyldu minni í nokkur ár og klikkar aldrei. Hún hentar fyrir öll tilefni; afmæli, páskana, kaldan haust dag, bröns, matarboð eða bara til að gúffa í sig á laugardags morgni
Hrekkjavöku tart

Þetta tart er rosa einfalt, bragðgott og hittir algjörlega í mark. Það er fullkomið fyrir hrekkjavöku veislurnar eða bara til bjóða upp á heima í kósý og rólegheitum. Tartið er með súkkulaði kexbotni, rauðri karamellu í botninum sem líkist blóði sem ég geri meiri fyrir hrekkjavöku stemninguna og síðan er súkkulaði ganache ofan á og tartið skreytt með köngulóarvef og köngulóm ofan á.
Drakúla Red velvet bollakökur

Red velvet bollakökur eru ekki mjög vel þekktar á litla íslandi en þær ættu að vera það. Þær eru svo mjúkar og flöffí og það er svo gott að hafa rjómaostakrem ofan á. Svo er hægt að setja smá hrekkjavöku twist á þær og skreyta með rauðri karamellu. Þessi red velvet uppskrift er ein af bestu uppskriftum sem ég hef prófað og klikkar ekki.
Dökkar súkkulaðibitakökur í hrekkjavökubúning

Þessa uppskrift hefur verið í miklu uppáhaldi á mínu heimili í nokkur ár. Ég og mamma sáum hana í bakstursþætti Nigellu í sjónvarpinu þegar ég var yngri. Við höfum kallað þær “Crying Cookies” því þær eru það góðar að ef þú gefur einhverjum sem er að gráta þessar kökur að þá líður þeim betur og hætta að gráta eftir að hafa smakkað þessar kökur. Í þessi tilfelli eru þær í hrekkjavökubúning með appelsínugulum smartís og gerir þær extra góðar.
Hrekkjavöku súkkulaðibúðingur

Súkkulaði búðingur er eitt að uppáhalds eftiréttunum mínum og ef ég væri að fara að halda hrekkjavöku veislu myndi ég bjóða upp á þessa hrekkjavöku búninga. Það er voðalega létt og fljótlegt að búa þá til og þeir eru svo góðir.
Lúxus súkkulaðibitakökur

Þegar ég fór til Berlín veturinn 2023 smakkaði ég svona þykkar djúsí súkkulaðibitakökur með sjávarsalti ofan á. Þær voru bestu smákökur sem ég hafði smakkað og þegar ég kom heim prófaði ég svo margar uppskriftir þangað til að ég bjó til þessar.. Og þær voru voru BETRI!
Þær eru svo djúsí og með smá karamellu keim út af púðursykrinum og brúnaða smjörinu. það er fátt betra en heit súkkulaðibitakaka beint úr ofninum með ísköldu mjólkurglasi.
Hindberja Tart

Þegar ég fór til köben sumarið 2023 smakkaði ég svona hindberja tart í bakaríinu Juno, það var það gott að ég gat ekki hætt að hugsa um það þegar ég kom heim. Ég tók mér þá áskorun að ná að búa það til heima og þá fæddist þessi uppskrift! Tartið er ferskt, sætt og smá súrt út af hindberjum og bara fullkomin blanda á milli stökka góða botninum, mjúku möndlu fyllingunni, súru hindberja fyllingunni og létta rjómanum ofaná.
Brownie Smákökur

Brownie Smákökur er æðisleg blanda af smákökum og brúnkum (brownies). Þær hafa oft verið kallaðar Brookies og er svo góðar ferskar úr ofninum með ísköldu mjólkurglasi. Það er líka hægt að leika sér með uppskriftina og bæta við appelsínu börki eða myndu dropum til að breyta aðeins til. Mér finnst mjög skemmtilegt að bæta smá appelsínubörk við deigið til að gera appelsínusúkkulaði kökur er svo er líka algjör klassi að strá bara smá sjávarsalti ofan á klassísku kökurnar og fara undir teppi og njóta þessum æðislegu kökum.
Hjónabandssæla

Góð hjónabandssæla er alltaf algjör klassík hvaða tíma ársins. Það er hægt að fá sér hana í böns eða í kaffiboðum, sunnudagsmorgnum með kaffibollanum sínum, á fallegum sumar morgni eða jafnvel á haustin og horfa á laufin falla. Í stuttu máli er hjónabandssæla alltaf góð en hún er sérstaklega góð þegar hún er heimagerð og þessi uppskrift klikkar svo sannarlega ekki.
Crème brûlée

Crème brûlée er alltaf aðal eftirrétturinn á áramótunum á mínu heimili. Það er alltaf svo mikil stemming að allir fá sér sitt eigið crème brûlée og brjóta í gegnum sykurinn til að komast að léttu rjóma fyllingunni sem er að fela sig undir sykrinum. Flestir halda að það sé bara hægt að fá sér crème brûlée á veitingastöðum en það er svo létt að búa það til heima og þori ég að segja að það sé betra. Þessi uppskrift hitar alltaf í mark og allir elska gott crème brûlée.